Fréttir
Nýjungar, viðurkenningar og fréttir úr Eyjum.

Forsetafrúin kíkti í humarsúpu
Skemmtileg sjómannahelgi að baki og viljum við þakka öllum þeim sem kíktu við í humarsúpu til okkar. Forsetafrúin Eliza Reid kíkti á okkur í súpu og líkaði vel.
Lesa frétt
Til hamingju sjómenn
Grímur kokkur og starfsfólk óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn og minna á að á morgun verðum við á bryggjunni með heita humarsúpu.

Vorum að pakka nýrri reyktri ýsu
Við vorum að pakka nýrri reyktri ýsu sem ætti að vera komin í allar helstu verslanir.

Nýjar umbúðir – sömu góðu bollurnar
Í apríl fóru fiskibollurnar okkar að birtast ykkur í nýjum umbúðum. Ákveðið var að hressa aðeins upp á umbúðirnar en innihaldið er ennþá það sama.

Gríðarlega ört vaxandi hópur sem kýs vegan
Fyrirtækið Grímur kokkur hefur farið sífellt vaxandi frá því það var sett á laggirnar árið 2005. Markmið Gríms kokks er að framleiða fyrsta flokks vöru úr fyrsta flokks hráefni sem er bæði holl, bragðgóð og fljótlegt að framreiða, en flestar vörurnar eru fulleldaðar svo aðeins þarf að hita þær upp.

Hlutum Fjöreggið 2017
Við erum svo stolt af að hafa hlotið Fjöreggið 2017 sem MNÍ, Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands, í samstarfi við Samtök iðnaðarins veitir fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði.

Haftengd nýsköpun
Grímur kokkur aðstoðaði nokkra nemendur í Háskólanum í Reykjavík í haftengdri nýsköpun með frábærum árangri. Þau voru að þróa bjórsnakk úr harðfiski og fengu mikið lof fyrir.
