Vorum að pakka nýrri reyktri ýsu

Við vorum að pakka nýrri reyktri ýsu sem ætti að vera komin í allar helstu verslanir.
Reykta ýsan frá Grími hefur verið mjög vinsæl. Hún er sögð hafa mildan reykingarkeim en Grímur passar að ofreykja hana ekki. Grímur notar minna salt en tíðkast við reykingu og því er hún hollari heldur en frá mörgum öðrum framleiðendum.
Grímur kokkur mælir með: Fá suðuna upp í potti, skera ýsuna í bita og setja út í í um 5 mínútur. Gott með soðnum kartöflum, rófum og íslensku smjöri.



