Fjölskyldufyrirtæki í Vestmannaeyjum
Grímur kokkur er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð í framleiðslu á tilbúnum sjávarréttum. Eigendur Gríms kokks ehf. eru hjónin Ásta María Ástvaldsdóttir og Grímur Þór Gíslason.
Fyrirtækið er staðsett í Vestmannaeyjum og sendir frá sér ferskar vörur daglega til Reykjavíkur. Þar sem við höfum aðgang að ferskasta fiski í heimi höfum við lagt megináherslu á tilbúna fiskrétti úr úrvals hráefni. Einnig framleiðum við nokkrar tegundir af grænmetisbuffum sem hafa verið mjög vinsæl.


Markmið
Að framleiða aðeins fyrsta flokks vöru úr fyrsta flokks hráefni sem er bæði holl, bragðgóð og fljótleg að framreiða.
Stefna
Að vera framsækið fyrirtæki á matvælamarkaði, láta hlutina gerast og ná árangri — til hagsbóta fyrir fyrirtækið, starfsfólkið og allra helst fyrir viðskiptavini okkar.
Stuttur afgreiðslutími
Sendum frá okkur daglega. Flestar vörurnar eru fulleldaðar svo aðeins þarf að hita þær upp.
Saga Gríms kokks
- 2005
Grímur kokkur stofnaður
Fyrirtækið sett á laggirnar í Vestmannaeyjum og hefur farið sífellt vaxandi síðan.
- 2017
Haftengd nýsköpun með HR
Grímur kokkur aðstoðaði nemendur Háskólans í Reykjavík við að þróa bjórsnakk úr harðfiski.
Lesa meira - 2017
Fjöreggið
Viðurkenning fyrir að auka fiskneyslu með fjölbreyttu vöruframboði úr íslensku sjávarfangi.
Lesa meira - 2018
Grænmetisréttirnir endurbættir
Heilsuréttir fjölskyldunnar endurbættir og þrjú ný grænmetisbuff bætast í línuna.
Lesa meira - 2021

Fólkið hjá Grími kokki
Verksmiðja fyrirtækisins er vel tækjum búin og húsnæðið algjörlega lagað að þörfum hennar.
Á sjómannadaginn er starfsfólkið á bryggjunni með heita humarsúpu — og þangað kíkti meðal annars forsetafrúin Eliza Reid árið 2021.
Lesa fréttina