Opnunartími · mán–fös 07–15 481 2665 grimurkokkur@grimurkokkur.is
Grímur kokkurGrímur kokkurVestmannaeyjum
Humarsúpa

Súpur

Humarsúpa

Með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar. Krafturinn er soðinn úr humarklóm.

Einstaklega bragðgóð fyrir sælkera. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp.

Krafturinn er soðinn úr humarklóm og úr því gerð kraftmikil humarsúpa sem hvaða veitingastaður sem er væri stoltur af.

Súpan hefur líka verið vinsæl sem pastasósa eða sósa yfir fiskibollurnar okkar.

Ofnæmisvaldar: KrabbadýrMjólkHveitiFiskurSelleríSoja

Pakkningar fyrir fyrirtæki

Frystivara
1

Hafið samband fyrir upplýsingar um verð: Fá tilboð eða hringið í sölustjóra í síma 481 2665.

Upphitun

Fullelduð vara — aðeins þarf að hita upp.

Grímur kokkur mælir meðAð steiktir séu humarhalar eða annað sjávarfang og bætt út í súpuna. Gott er að hafa hvítlauksbrauð eða volg smábrauð með.

Innihald

Humarsoð (70%) (vatn, humarklær, gulrætur, laukur, tómatpúrra, hvítlaukur, pipar, múskat, stjörnuanís, lárviðarlauf), jurtarjómi (áfir (úr mjólk), grænmetisolía, umbreytt sterkja, ýruefni (E472b, E435, E433), bragðefni, bindiefni (E407), litarefni (E160e)), smjör, hveiti, smjörlíki (salt, ýruefni (E471, E475, E472c), þráarvarnaefni (E322, E304, E306), litarefni (E160a), náttúrleg bragðefni), tómatpúrra, sítrónusafi, koníak, humarbragðefni (hvítvín, fiskur, sellerí, mjólkursýra, kartöflusterkja, krydd, rotvarnarefni (E202)), kraftur (vatnsrofin grænmetisprótein (inniheldur soja), hvítlaukur, paprika, karrý, stjörnuanís.

Ofnæmis- og óþolsvaldar eru feitletraðir.

Næringargildi í 100 g

Orka512 kJ / 122 kkal
Fita10,8 g
– þar af mettuð fita7 g
Kolvetni4,4 g
– þar af sykurtegundir0,8 g
Prótein1,8 g
Salt0,7 g

Strikin sýna gildið miðað við hæsta gildi í vöruúrvalinu.