Haftengd nýsköpun

Grímur kokkur aðstoðaði nokkra nemendur í Háskólanum í Reykjavík í haftengdri nýsköpun með frábærum árangri. Þau voru að þróa bjórsnakk úr harðfiski og fengu mikið lof fyrir.
Hópurinn fékk m.a. tvö af fimm verðlaunum í nýsköpunaráfanga HR: besta fyrirtækið í sjávarútvegsbransanum og besta fyrirtækið í öllum áfanganum. Síðar fóru þau til Danmerkur þar sem þau kepptu í alþjóðlegri nýsköpunarkeppni fyrir hönd HR.
Til hamingju Volcano seafood hópurinn og takk fyrir frábært samstarf.



