Opnunartími · mán–fös 07–15 481 2665 grimurkokkur@grimurkokkur.is
Grímur kokkurGrímur kokkurVestmannaeyjum

Fullelduð. Aðeins að hita upp.

Plokkfiskur, fiskibollur, humarsúpa og grænmetisréttir frá fjölskyldufyrirtæki í Vestmannaeyjum. Fyrsta flokks vara úr fyrsta flokks hráefni — holl, bragðgóð og fljótleg að framreiða.

Veldu rétt og aðferð — tækið sýnir upphitunina eins og hún stendur á umbúðunum.

180°15:00

15–20 mín. við 180°C

Grímur kokkur mælir með: Soðnum kartöflum, salati, brúnni sósu með eða án lauks, lauksmjöri eða karrýsósu.

Úr sjónum og úr garðinum

Tilbúnir fiskréttir úr þorski og ýsu — og grænmetisbuff og bollur sem hafa verið mjög vinsæl.

Allar 15 vörurnar
Plokkfiskur frá Grími kokki

Vinsælasti réttur Gríms kokks

Plokkfiskurinn

Einn af þessum gömlu góðu íslensku fiskréttum — og sá réttur sem hefur verið aðalsmerki Gríms kokks í gegnum árin, hvort sem er fyrir mötuneyti, heimili, skóla eða leikskóla.

Grímur kokkur mælir með fersku salati og rúgbrauði sem meðlæti. Toppurinn er að setja ost yfir og gratínera í ofni.

Kælivara4 × 5 kg10 × 1 kg25 × 400 g
Frystivara4 × 3 kg
Um plokkfiskinn

Úr vöruúrvalinu

Allt fulleldað — aðeins þarf að hita upp í ofni, á pönnu eða í örbylgjuofni.

Sjá allt vöruúrvalið
Humarsúpa
Súpur

Humarsúpa

Með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar. Krafturinn er soðinn úr humarklóm.

122 kkal · Frysti
Fiskibollur
Skráargatið
Bollur

Fiskibollur

Margir viðskiptavinir Gríms kokks hafa sagt að þær minni helst á fiskibollurnar hennar mömmu.

153 kkal · Kæli · Frysti
Fiskistangir
Fiskréttir

Fiskistangir

Forsteiktar fiskistangir sem hafa slegið í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum.

174 kkal · Frysti
Gulrótarbuff
Skráargatið
Buff

Gulrótarbuff

Gómsæt gulrótarbuff — eggja-, mjólkur-, ger- og glútenlaus.

140 kkal · Frysti

Frá Eyjum, daglega

Grímur kokkur er staðsettur á Hlíðarvegi 5 í Vestmannaeyjum og sendir frá sér ferskar vörur daglega til Reykjavíkur. Þar sem við höfum aðgang að ferskasta fiski í heimi höfum við lagt megináherslu á tilbúna fiskrétti úr úrvals hráefni.

  • Stuttur afgreiðslutímiSendum frá okkur daglega
  • Fyrsta flokks varaGæði í gegn
  • FjölskyldufyrirtækiÁsta María Ástvaldsdóttir og Grímur Þór Gíslason
Um Grím kokk
HellaSelfossLandeyjahöfnReykjavíkVestmannaeyjarHlíðarvegi 5

Fyrir mötuneyti, skóla og veitingastaði

Réttirnir fást sem kælivara og frystivara í stórum pakkningum, til dæmis 5 kg, 4 × 5 kg eða 28 × 550 g. Reiknaðu út magnið fyrir þitt mötuneyti og sendu okkur beiðni um verð.