Opnunartími · mán–fös 07–15 481 2665 grimurkokkur@grimurkokkur.is
Grímur kokkurGrímur kokkurVestmannaeyjum

9. febrúar 2018

Gríðarlega ört vaxandi hópur sem kýs vegan

Fyrirtækið Grímur kokkur hefur farið sífellt vaxandi frá því það var sett á laggirnar árið 2005. Markmið Gríms kokks er að framleiða fyrsta flokks vöru úr fyrsta flokks hráefni sem er bæði holl, bragðgóð og fljótlegt að framreiða, en flestar vörurnar eru fulleldaðar svo aðeins þarf að hita þær upp.

Óhætt er að segja að plokkfiskurinn hafi verið aðalsmerki Gríms kokks í gegnum árin enda hefur rétturinn notið gríðarlegra vinsælda á Íslandi, hvort sem um er að ræða mötuneyti, heimili, skóla eða leikskóla.

„Heilsuréttir fjölskyldunnar komu fyrst á markað fyrir um tveimur árum en núna höfum við gert endurbætur á þessum réttum og eru þeir nú allir vegan,“ segir Grímur Gíslason, eigandi Gríms kokks. „Nú á næstu dögum munu koma þrír grænmetisréttir til viðbótar: hvítlauks- og hvítbaunabuff, kjúklingabaunabuff með sólþurrkuðum tómötum og brokkolí og svo gulrótar- og linsubaunabuff.“

Í fjölbreyttri flóru rétta má einnig finna fiskibollur með viðbættum Omega-3 fitusýrum, afrakstur verkefnis sem fyrirtækið tók þátt í ásamt fyrirtækjum frá Noregi, Finnlandi, Hollandi og Ítalíu.

Viðtal við Grím kokk í Fréttum 5. febrúar 2018.