Reykt ýsa með hrísgrjónum og eplum
Ofnréttur með mildri reyktri ýsu, eplum, sætu sinnepi og gratínosti. Gott með hvítlauksbrauði og fersku salati.

Aðferð
Byrjið á að sjóða hrísgrjónin.
Ýsan er roðrifin og sett í pott. Suðunni er náð upp og þá er ýsan tekin úr pottinum.
Setjið hrísgrjónin í eldfast mót og raðið ýsunni yfir.
Skerið grænmetið og eplin og svissið á pönnu. Bætið rjómanum og sæta sinnepinu á pönnuna.
Bætið þessu í eldfasta mótið og dreifið að lokum ostinum yfir.
Bakið í 175°C heitum ofni í 12 mínútur. Gott er að bera fram með hvítlauksbrauði og fersku salati.
Í ofni · 175°C12:00
Fleiri uppskriftir

Fiskitaco með mangósalsa
Fiskitaco er eitthvað sem allir ættu að prófa. Afar hollt og gott og góð tilbreyting frá þessu hefðbundna. Fiskistangirnar hans Gríms eru tilvaldar í þann rétt.

Humarsúpan okkar sem sósa
Humarsúpan er með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar. Hún er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp — og hún nýtist í meira en súpu.

Fiskistangir í fiskitaco
Glænýr þorskur hjúpaður með raspi. Hægt er að nýta stangirnar á ólíkan hátt en nýjasta prófun okkar er að nýta þær í fiskitaco.
