
Fiskistangir
Forsteiktar fiskistangir sem hafa slegið í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum.
Fiskitaco er eitthvað sem allir ættu að prófa. Afar hollt og gott og góð tilbreyting frá þessu hefðbundna. Fiskistangirnar hans Gríms eru tilvaldar í þann rétt.

Hitið ofninn í 185°C. Setjið stangirnar frosnar inn og hitið í 12–15 mínútur.
Skerið hráefnin í salsað afar smátt niður og blandið saman í skál. Kryddið til með salti og pipar og kreistið safann úr límónunni yfir. Geymið salsað í kæli áður en það er borið fram.
Takið taco pönnuköku og setjið salsa fyrst. Skerið svo fiskistöng í litla bita og raðið á.
Toppið með hvítlauksdressingu. Verði ykkur að góðu.

Salsauppskriftina fengum við að láni frá Evu Laufey Kjaran og mælum mikið með henni.

Forsteiktar fiskistangir sem hafa slegið í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum.

Ofnréttur með mildri reyktri ýsu, eplum, sætu sinnepi og gratínosti. Gott með hvítlauksbrauði og fersku salati.

Humarsúpan er með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar. Hún er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp — og hún nýtist í meira en súpu.

Glænýr þorskur hjúpaður með raspi. Hægt er að nýta stangirnar á ólíkan hátt en nýjasta prófun okkar er að nýta þær í fiskitaco.