
Fiskistangir
Forsteiktar fiskistangir sem hafa slegið í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum.
Glænýr þorskur hjúpaður með raspi. Hægt er að nýta stangirnar á ólíkan hátt en nýjasta prófun okkar er að nýta þær í fiskitaco.

Hitið ofninn í 185°C. Setjið stangirnar frosnar inn og hitið í 12–15 mínútur.
Stangirnar eru sérlega ljúffengar þegar raspurinn er orðinn stökkur eftir eldun.
Raðið í taco og prófið með mangósalsa.

Forsteiktar fiskistangir sem hafa slegið í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum.

Fiskitaco er eitthvað sem allir ættu að prófa. Afar hollt og gott og góð tilbreyting frá þessu hefðbundna. Fiskistangirnar hans Gríms eru tilvaldar í þann rétt.

Ofnréttur með mildri reyktri ýsu, eplum, sætu sinnepi og gratínosti. Gott með hvítlauksbrauði og fersku salati.

Humarsúpan er með metnaðarfyllstu vörutegundum okkar. Hún er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp — og hún nýtist í meira en súpu.